Frí heimsending á öllu yfir 20000kr!
Vöruskil
Skilafrestur:
Neytandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í upprunalegu ástandi. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent neytanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af neytanda. Neytandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi.
Galli:
Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun Vaz á Íslandi boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Vaz, eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Vaz í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan meðallíftíma umfram 2 ár. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
Síðast uppfært: 20. febrúar 2021